Hagnýtar upplýsingar
Að koma og fara
Í Álfaborg er lögð áhersla á að tekið sé vel á móti hverju barni svo það finni sig velkomið. Mikilvægt er að foreldrar gefi sér góðan tíma þegar komið er með barnið í leikskólann og þegar það er sótt. Foreldrar þurfa að fylgja barninu til starfsfólks og er einnig nauðsynlegt að starfsfólk viti þegar barnið er sótt. Þetta er öryggisatriði fyrir starfsfólk og ekki síður fyrir börnin.
Afmæli
Börnin mega koma með köku, ís eða annað sem til fellur þegar þau eiga afmæli. Munið að þá þarf að athuga hversu mörg börn eru í leikskólanum á afmælisdaginn. Börnin fá að hafa fána hjá sér við kaffiborðið og kórónu á höfðinu sem leikskólinn á. Ef vel viðrar þá flöggum við fyrir afmælisbarninu.
Klæðnaður barna
Nauðsynlegt er að börnin hafi með sér aukaföt. Einnig þurfa þau að hafa með sér útiklæðnað eftir veðri. Hafa ber í huga að veðrabreytingar eru stundum örar í Bláskógabyggð og stundum þarf að nota bæði regn- og snjógalla sama daginn. Einnig er gott að muna að leikskólinn er vinnustaður barnanna og unnið er með málningu og önnur efni sem ekki er gott að ná úr fötum. Þess vegna er betra að börnin komi ekki í sínum bestu fötum í leikskólann.
Nauðsynlegt er að taka heim óhrein og blaut föt á hverjum degi þ.m.t. vettlinga til þess að barnið hafi ávallt hrein og þurr föt í leikskólanum.
Mikilvægt er að merkja föt barnanna, sérstaklega yfirhafnir og stígvél, það myndi létta okkur vinnuna. Það eru líka minni líkur á að föt tapist ef þau eru merkt.Einnig biðjum við um að hólf barnanna í fataklefa verði tæmd í lok hverrar viku svo hægt sé að þrífa þau.
Fjarvistir, slys og veikindi
Börn í leikskólum Bláskógabyggðar eru slysatryggð á meðan þau dvelja í leikskólanum. Ef barn verður fyrir slysi, eða veikist, er haft samband við foreldra. Náist ekki í þá eða ef um alvarlegt slys er að ræða er farið beint með barnið á heilsugæslustöð. Trygging tekur ekki til óhappa sem verða á fötum barnsins eða öðru sem það hefur með sér í leikskólann.
Ef barnið kemur ekki í leikskólann, vinsamlega látið okkur vita. Mikilvægt er að fá upplýsingar um breytingar í lífi barnsins til þess að við getum brugðist við ef barnið sýnir breytta hegðun í leikskólanum, s.s. breytta fjölskylduhagi, fjarveru forelda, utanlandsferðir o.fl.
Leikskólastarf í Álfaborg er skipulagt með það í huga að öll börn geti tekið þátt í starfinu, bæði úti og inni. Veik börn eiga ekki að vera í leikskólanum. Börn þurfa að vera minnst einn dag heima, hitalaus eftir veikindi. Ef aðstæður í leikskólanum leyfa, þá er heimilt að hafa börnin inni einn daga eftir veikindi. Athugið að barnið getur líka verið lasið þótt hiti sé ekki merkjanlegur. Foreldrar verða að meta hvort barnið er nógu hresst til að takast á við ,,vinnudag” í leikskólanum. Ef barnið má ekki vera úti eftir veikindi fer það ekki heldur í íþróttir í íþróttahúsi.
Við mælumst til að við séum ekki beðnar um að gefa börnum lyf og fylgjum leiðbeiningum frá Heilsugæslustöð Laugaráss. Til þess að geta orðið við beiðni um sérfæði þarf vottorð frá lækni því til stuðnings.
Dvalartímar
Leikskólinn reynir að koma til móts við þarfir foreldra hvað dvalartíma varðar að því marki að það komi ekki niður á starfsseminni eða börnunum. Ef foreldrar óska eftir breytingu á eða viðbót við dvalartíma barnsins sækja þeir um hjá leikskólastjóra fyrir 19. hvers mánaðar.
Greiðsla leikskólagjalda
Dvalargjöld eru innheimt með gíróseðli. Dvalargjald er greitt fyrirfram með gjalddaga 1. hvers mánaðar og er eindagi 20 dögum síðar. Hafi gjald ekki verið greitt á eindaga er send ítrekun sjö dögum seinna, en 50 dögum eftir gjalddaga fara ógreiddir gíróseðlar til frekari innheimtu sem hefur í för með sér stóraukinn kostnað fyrir greiðandann. Hafi vanskil varað lengur en 3 mánuði varðar það missi leikskólaplássins. Gagnkvæmur uppsagnarfrestur er 1 mánuður og miðast við 1. hvers mánaðar. Ef barn er fjarverandi vegna veikinda eða annarra orsaka, greiða foreldrar fyrir leikskólarýmið, en geta óskað eftir því að fæðishluti gjaldsins falli niður vari fjarvistir meira en hálfan mánuð samfleytt.
Starfsdagar
Starfsdagar leikskólanna í Bláskógabyggð eru þrír á ári. Starfsdagana nota starfsmenn til að skipuleggja, undirbúa og endurmeta starf sitt. Þeir nýtast einnig í námskeið og fyrirlestra. Leikskólinn er lokaður á starfsdögum og eru auglýstir með a.m.k. 4 vikna fyrirvara.
Sumarleyfislokun
Leikskólinn fer í sumarleyfi frá 1. júlí – 14. ágúst að báðum dögum meðtöldum. Foreldrar geta sótt um allt að fjórar vikur til viðbótar í sumarfrí og greiða þá aðeins hálft grunngjald á meðan. Skal þá heildarsumarfríið vera samfellt.
Jólaleyfi
Á Þorláksmessu, aðfangadag og gamlársdag er lokað í leikskólanum. Á milli jóla og nýárs er opið en vegna skipulags þurfum við að vita fjölda barnanna sem ætla að dvelja í Álfaborg þessa daga. Nánar auglýst í desember.
Foreldrafélag
Allir foreldrar leikskólabarnanna gerast sjálfkrafa meðlimir í foreldrafélaginu. Kosið er í stjórn félagsins á haustfundi leikskólans. Markmið foreldrafélagsins er að styðja og styrkja uppeldisstarfið sem unnið er í leikskólanum. Foreldrar greiða ákveðna upphæð í sjóð sem notaður er til að auðga leikskólastarfið. Sem dæmi má nefna leiksýningar, skemmtiferðir, grilldag og margt fleira.
Foreldraráð
Vorið 2008 voru ný lög sett á alþingi um leik, grunn og framhaldsskóla og ráðningu og menntun kennara. Í lögunum er kveðið á um að hver leikskóli eigi að kjósa í foreldraráð í september ár hvert og er kosið til eins árs í senn. Í foreldraráði sitja að lágmarki þrír foreldrar.
Hlutverk foreldraráðsins er að gefa umsagnir til leikskóla og nefndar um skólanámskrá og aðrar áætlanir sem varða starfsemi leikskólans. Þá skal ráðið fylgjast með framkvæmd skólanámskrár og annarra áætlana innan leikskólans og kynningu þeirra fyrir foreldrum. Foreldraráð hefur einnig umsagnarrétt um allar meiri háttar breytingar á leikskólastarfi.
Foreldrafundir og viðtöl
Fundur með foreldrum og starfsfólki leikskólans er haldinn á haustin og er starfsemi vetrarins kynnt. Foreldraviðtöl eru skipulögð tvisvar sinni á vetri þ.e. í október og mars. Að auki er sjálfsagt að fá aukaviðtöl ef þörf er á, ef það er eitthvað sem ykkur liggur á hjarta. Einnig köllum við foreldra í viðræður ef okkur finnst ástæða til.
Upplýsingatöflur og heimasíða
Leikskóli setur skilaboð og upplýsingar á töflu í forstofu leikskólans. Mikilvægt er að lesa reglulega orðsendingar sem eru þar. Einnig koma allar helstu upplýsingar fram á forsíðu heimasíðunnar og því eru foreldrar hvattir til að fara reglulega inn á hana og fylgjast með starfinu. Leikskólaráðgjafi á Skólaskrifstofu Suðurlands er starfsmönnum leikskóla til ráðgjafar um fagleg málefni, samskipti og samstarf.