Mánudaginn 6. febrúar verður dagur leikskólans haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins. 6 febrúar er merkisdagur í íslenskri leikskólasögu því þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín.
Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, mennta- og menningarmála-ráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og starf leikskólakennara og kynna starfsemina út á við.
Dagur leikskólans er nú haldinn í fimmta sinn. Í tilefni dagsins hefur m.a. verið auglýst eftir gullkornum frá leikskólum landsins. Þau þurftu að vera lýsandi fyrir það nám sem leikskólabörn stunda og óskað var eftir mynd með. „Bestu“ gullkornin hafa verið valin á veggspjald og verður þeim dreift til leikskóla og sveitafélaga. Auk þess var óskað eftir myndböndum með stuttum viðtölum við leikskólabörn um leikskólalífið. Dæmi um spurningar sem þau svöruðu: Hvað lærir þú í leikskólanum? Hvað gera leikskólakennarar og hvernig eiga góðir leikskólakennarar að vera? Myndböndin verða notuð við ýmis tækifæri og reynt að koma efni þeirra á framfæri í fjölmiðlum.
Í tilefni dagsins ætlum við öll í leikskólanum Álfaborg að fara í göngu- og vettvangsferð um Reykholtið. Félag leikskólakennara og Félag stjórnenda í leikskólum hefur gefið út veggspjald og mælst er til þess að það verði afhent sveitarstjóra eða staðgengils hans þennan merka dag.