Dúkkan hennar Dóru Dúkkan hennar Dóru var með sótt, sótt, sótt, hún hringdi og sagði lækni að koma fljótt, fljótt, fljótt. Læknirinn kom þá með sína tösku og sinn hatt -hann bankaði á dyrnar: Ra, ta, ta, ta, tatt! Hann skoðaði dúkkuna og hristi sinn haus: Hún skal í rúmið og ekkert raus! Hann skrifaði á miða hvaða pillu hún skyldi fá: Ég kem aftur á morgun, ef hún er enn veik þá.
Brunabíll, köttur og skógarþröstur
  Brunabíll, köttur og skógarþröstur
Ba, bú, ba, bú, brunabíllinn flautar. Hvert er hann að fara? Vatn á eld að sprauta - tss, tss, tss, tss! Gerir alla blauta.
Mjá, mjá, mjá, mjá, mjálmar gráa kisa. Hvert er hún að fara? Út í skóg að ganga - uss, uss, uss, uss! Skógarþröst að fanga.
Bí, bí, bí, bí, skógarþröstur syngur. Hvert er hann að fara? Burt frá kisu flýgur - víí, víí, víí, víí! Loftin blá hann smýgur.
A ram sa sa
:,:A ram sa sa, a ram sa sa gúlí gúlí gúlí gúlí gúlí ram sa sa:,: :,:Hér er ég, hér er ég gúlí gúlí gúlí gúlí gúlí ram sa sa:,:
Krumminn í hlíðinni
Krumminn í hlíðinni hann fór að slá, þá kom lóa lipurtá og fór að raka ljá. Hann gaf henni hnappa þrjá og bannaði henni´að segja frá en hann spói spíssnefur hann sagði frá, prakkarinn sá. Þó var ljáin ekki nema hálft annað puntstrá |
Nú gaman, gaman er Nú gaman, gaman er í góðu veðri að leika sér, og fönnin hvít og hrein og hvergi sér á stein. Ó já, húrra tra la la. Svo bind ég skíði á fiman fót
Dropalagið Drip, drop, drip, drop segja droparnir við pollinn. Drip, drop, drip, drop segja droparnir við pollinn. Og þeir stinga sér í kaf og breyta pollinum í haf og flýg um móa og grjót. Húrra, húrra, húrra.
Fiskalagið
Nú skulum við syngja um fiskana tvo sem
ævi sína enduðu í netinu svo. Þeir syntu og syntu og syntu um allt en mamma þeirra sagði: Vatnið er kalt!
Baba, búbú, baba, bú! Baba, búbú, baba, bú! Þeir syntu og syntu og syntu um allt en mamma þeirra sagði: Vatnið er kalt! Annar hét Gunnar en hinn hét Geir, þeir voru pínulitlir báðir tveir. Þeir syntu og syntu og syntu um allt en mamma þeirra sagði: Vatnið er kalt!
Baba, búbú, baba, bú! ...
Óli fór til Bertu
Óli fór til Bertu, bakaríis tertu og bað hana um að kyssa sig. Þá sagði Berta bakaríisterta: Ekki nem´þú elskir mig! Þá sagð´hann Óli sem alltaf er á hjóli: Berta ég elska þig! Þá sagði Berta bakaríisterta: þá máttu kyssa mig.
Hesta Jói
Hesta Jói var harður karl af sér, enga vild´ann móti sér. Ef að einhver skildi móðga þennan mikla hestamann, þá mund´ann skjóta ++ beint á hann. Jeí jei, jeí jó Jeí jei, jeí jo ho ho ho hó. Ef að einhver skildi móðga þennan mikla Hestamann, þá mund´ann skjóta ++ beint á hann!
|