Gíraffa- og Ljónahópur
Ég heyri svo vel
Ég heyri svo vel, ég heyri snjóinn snjóa Ég heyri svo vel, ég heyri grasið gróa Ég heyri svo vel, ég heyri orminn mjóa, heyri hárið vaxa, heyri neglurnar lengjast, heyri hjartað slá.
Þú finnur það vel, allt færist nær þér. Þú finnur það vel, þú kemur nær mér. Þú finnur það vel, allt fæðist í þér, andlitin lifna og húsin dansa og hundurinn hlær.
Foli, foli fótalipri.
:,:Foli,foli fótalipri, flýttu þér nú heim að bæ:,: :;:Tra-rí, ra-la-la, flýttu þér nú heim að bæ:;:
:,: Heima mun þín heyið bíða en hjá mömmu koss ég fæ:,: :,: Tra-rí, ra-la-la, en hjá mömmu koss ég fæ.:,:
:,:Herðir hlaupin hlaupagarpur hreint ei telur sporin sín.:,: :,:Tra-rí, ra-la-la, hreint ei telur sporin sín.:,:
:,:Aldrei hef ég heldur, Jarpur, hafrastráin talið þín.:,: :,:Tra-rí, ra-la-la,
Bokki sat í brunni - Þula
Bokki sat í brunni, hafði blað í munni, hristi sína hringa, bað fugl að syngja.
Grágæsamóðir! ljáðu mér vængi, svo eg geti flogið upp til himintungla.
Tunglið, tunglið taktu mig og berðu mig upp til skýja, þar situr hún móðir mín og kembir ull nýja.
Þar sitja nunnur, skafa gulltunnur. Þar sitja systur, skafa gullkistur. Þar sitja kallar, skafa gulldalla. Þar sitja englar og skafa gullteina. Þar sitja Jónar, skafa gullprjóna. Þar sitja sveinar, skafa gullteina. Þar sitja Freyjur, skafa gulltreyjur. Þar sitja mágar, skafa gulltágar. Þar situr faðir minn og skefur gullhattinn sinn.
A ram sa sa
:,:A ram sa sa, a ram sa sa gúlí gúlí gúlí gúlí gúlí ram sa sa:,:
Dúkkan hennar Dóru
Dúkkan hennar Dóru var með sótt, sótt, sótt, hún hringdi og sagði lækni að koma fljótt, fljótt, fljótt. Læknirinn kom þá með sína tösku og sinn hatt -hann bankaði á dyrnar: Ra, ta, ta, ta, tatt! Hann skoðaði dúkkuna og hristi sinn haus: Hún skal í rúmið og ekkert raus! Hann skrifaði á miða hvaða pillu hún skyldi fá: Ég kem aftur á morgun, ef hún er enn veik þá.
Skýin
Við skýin felum ekki sólina af illgirni (klapp, klapp, klapp) Við skýin erum bara að horfa á leiki mannanna (klapp, klapp, klapp) Við skýin sjáum ykkur hlaupa-oouuúúííh! Í rokinu! Klædd gulum, rauðum, grænum og bláum regnfötum.
Eins og regnbogi meistarans, regnbogi meistarans, við skýin erum bara grá, bara grá, á morgun kemur sólin, hvað verður um skýin þá.
Sex litlar endur
Sex litlar endur þekki ég fimm eru mjóar og ein er sver. Ein þeirra vappar og sperrir stél fremst í flokki og segir kvakk, kvakk, kvakk, segir kvakk, kvakk, kvakk. Niður að sjónum vilja þær vagga vibbe, vabbe, vibbe til og frá. Ein þeirra vappar og sperrir stél fremst í flokki og segir kvakk, kvakk, kvakk, segir kvakk, kvakk, kvakk.
Lobbukvæði
Heyrðu Lobba, viltu ljá mér litla hvolpinn þinn Heldurðu að ég meiði nokkuð þetta litla skinn? Ég skal fara varlega og hafa gát á því að hann detti ekki í gólfið og reki nefið í.
Mig langar til að skoða skæru augun blá og litlu skrýtnu rófuna sem er aftan á Láta hann svo hlaupa á litlu fótunum og leika mér svo dálítið við hann og klappa ' honum
Ætlarðu' ekki, Lobba mín, að lána mér hann? Ég læt þig hafa' í staðinn beinið sem ég fann. Það er sjáðu utan á því ofurlítið ket, og seinna skal ég gefa þér meira ef ég get.
Ég verð nú ekki lengi að naga beinið þitt, en náttúrulega máttu skoða litla skinnið mitt. En ef hann fer að væla og ef það koma tár, þá ættir þú að vara þig, því ég get orðið sár.
Krummi krunkar úti
Krummi krunkar úti, kallar á nafna sinn: “Ég fann höfuð af hrúti, hrygg og gæruskinn. Komdu nú og kroppaðu með mér, krummi nafni minn. Komdu nú og kroppaðu með mér, krummi nafni minn”.
|
Halli á grúfunni
Haldið´ ekki 'ann Halli komi á grúfunni, á heljarstökki fram af einni þúfunni. Hann fór það bara fínt,en hélt hann hefði týnt :,: gleraugunum, höfðinu eða húfunni :,:
Nú er úti norðanvindur
Nú er úti norðanvindur, Nú er hvítur Esjutindur. Ef ég ætti úti kindur Mundi´ ég láta´ þær allar inn, Elsku besti vinur minn. Úmb-a-rass-a, úmb-a-rass-a, Úmb-a-rass-a-sa. Úmb-a-rass-a, úmb-a-rass-a, Úmb-a-rass-a-sa. Úmb-a-rass-a-sa.
Upp er runninn öskudagur, ákaflega skýr og fagur. Einn með poka ekki ragur úti vappar heims um ból. Góðan daginn, gleðileg jól. Úmb-a-rass-a....
Elsku besti stálagrér, heyrirðu hvað ég segi þér: ,,Þú hefur étið úldið smér, og dálítið af snæri, elsku vinurinn kæri.” Úmb-a-rass-a...
Þarna sé ég fé á beit, ei er því að leyna. Nú er ég kominn upp í sveit á rútunni hans Steina. Skilur þú hvað ég meina? Úmb-a-rass-a...
Höfði stingur undir væng, hleypur nú á snærið. Hún Gunna liggur undir sæng, öll nema annað lærið. Nú er tækifærið. Úmb-a-rass-a...
Þorraþrællinn 1866
Nú er frost á Fróni, frýs í æðum blóð. Kveður kuldaljóð Kári´ í jötunmóð. Yfir laxalóni liggur klakaþil hlær við hríðarbyl hamragil. Mararbára blá brotnar þung og há unnar steinum á yggld og grett á brá. Yfir aflatjóni æðrast skipstjórinn. Harmar hlutinn sinn hásetinn.
Horfir á heyjaforðann hryggur búandinn: ,,Minnkar stabbinn minn, magnast harðindin. Nú er hann enn á norðan, næðir kuldaél yfir móa´ og mel, myrkt sem hel.” Bóndans býli á björtum þeytir snjá. Hjúin döpur hjá honum sitja þá. Hvítleit hringaskorðan huggar manninn trautt: Brátt er búrið autt, búið snautt.
Þögull þorri heyrir þetta harmakvein, en gefur grið ei nein, glíkur hörðum stein, engri skepnu eirir, alla fjær og nær kuldaklónum slær og kalt við hlær: Bóndi minn, þitt bú betur stunda þú. Hugarhrelling súr er hart þér þjakar nú, þá mun hverfa´ en fleiri höpp þér falla í skaut. Senn er sigruð þraut, ég svíf á braut.
Fingurnir
Þumalfingur, þumalfingur, hvar ert þú? Hér er ég, hér er ég. Góðan daginn, daginn, daginn.
Vísifingur, vísifingur, hvar ert þú? Hér er ég, hér er ég. Góðan daginn, daginn, daginn.
Langatöng, langatöng, hvar ert þú? Hér er ég, hér er ég. Góðan daginn, daginn, daginn.
Baugfingur, baugfingur, hvar ert þú? Hér er ég, hér er ég. Góðan daginn, daginn, daginn.
Litlifingur, litlifingur, hvar ert þú? Hér er ég, hér er ég. Góðan daginn, daginn, daginn.
Vinstri hönd, vinstri hönd, hvar ert þú? Hér er ég, hér er ég. Góðan daginn, daginn, daginn.
Hægri hönd, hægri hönd, hvar ert þú? Hér er ég, hér er ég. Góðan daginn, daginn, daginn.
Heimsókn í dýragarðinn
:,: Ég fór í dýragarð í gær og gettu hvað ég sá :,:
:,: F - f- f- f - fílinn þar ég sá :,:
Lagið um það sem er bannað Það má ekki pissa bakvið hurð og ekki henda grjóti oní skurð ekki fara í bæinn og kaupa popp og tyggjó og ekki nota skrúfjárn fyrir sleikjó
Það má ekki vaða út í sjó og ekki fylla húfuna af snjó ekki tína blómin sem eru út í beði og ekki segja ráddi heldur réði. Þetta fullorðna fólk er svo skrýtið það er alltaf að skamma mann þó maður geri ekki neitt það er alltaf að skamma mann.
Það má ekki skoða lítinn kall og ekki gefa ketti drullumall og ekki skjóta pabba með byssunni hennar ömmu og ekki tína orma handa mömmu
Það má ekki hjóla inn í búð og ekki gefa litla bróður snúð ekki fara að hlæja þó einhver sé að detta - ekki gera hitt og ekki þetta.
Þetta fullorðna fólk er svo skrýtið það er alltaf að skamma mann þó maður geri ekki neitt það er alltaf að skamma mann.
Krummi svaf í klettagjá
Krummi svaf í klettagjá, kaldri vetrar nóttu á, :,: verður margt að meini. :,: Fyrr en dagur fagur rann freðið nefið dregur hann :,: undan stórum steini. :,:
Allt er frosið úti gor, ekkert fæst við ströndu mor :,: svengd er metti mína,:,: ef að húsum heim ég fer heimafrakkur bannar mér :,: seppi úr sorpi að tína.:,:
Á sér krummi ýfði stél, einnig brýndi gogginn vel, :,: flaug úr fjallagjótum, :,: lítur yfir byggð og bú, á bæjum fyrr en vakna hjú, :,: veifar vængjum skjótum. :,:
Sálaður á síðu lá sauður feitur garði hjá :,: fyrrum frár á velli., :,: Krunk krunk, nafnar, komið hér Krunk krunk, því oss búin er :,: krás á köldu svelli. :,:
|